Pétur Jóhann Sigfússon er einn þekktasti uppistandari Íslands og hefur í gegnum tíðina glatt landsmenn með beittum húmor, einstökum karakterum og ógleymanlegri sviðsframkomu. Hvort sem tilefnið er árshátíð, starfsmannaviðburður, ráðstefna, afmæli, brúðkaup eða annars konar veisla, kemur Pétur Jóhann með réttu blönduna af húmor, orku og fagmennsku. Uppistand sem setur punktinn yfir i-ið Pétur Jóhann býður upp á uppistand sem hentar fjölbreyttum hópum og tilefnum. Með persónulegum frásögnum, skemmtilegum pælingum og óvæntum uppákomum tryggir hann að gestir fái eitthvað til að hlæja að – og tala um eftir viðburðinn. Veislustjórn með húmor og öryggi Sem veislustjóri heldur Pétur Jóhann utan um dagskrána, tengir saman atriði og sér til þess að stemningin haldist góð frá upphafi til enda. Hann kann að lesa salinn, bregðast við því sem gerist í augnablikinu og skapa afslappaða og skemmtilega stemningu án þess að stela senunni. Pétur Jóhann hentar fyrir alls konar viðburði – stóra sem smáa. Ef markmiðið er að halda viðburð sem gestir muna eftir, þá er Pétur Jóhann klár í slaginn.